Læra osteópatíu

Á Íslandi er hægt að læra osteópatíu ef þú hefur lokið grunnnámi (Bachelor) eða meistaranámi á heilbrigðissviði, til dæmis í hjúkrunarfræði, sjúkraþjálfun eða íþróttafræði. Námið er fjögurra ára, kennt í lotum og skipulagt af ESO. Frekari upplýsingar má finna hér að neðan: 
https://osteonordic.is/osteopatia/ eða https://esointernational.com/where-we-teach/iceland/

Hér eru upplýsingar um skóla til að læra osteópatíu í mismunandi löndum. Hægt er að nálgast almennar upplýsingar um osteópatíu hér á Wikipedia
Listi af osteópatíuskólum á Wikipedia
 
Hér eru osteópataskólar utan Bandaríkjanna

Osteópataskólar utan Bandaríkjanna
 
Hér er upptalning á osteópataskólum í Bandaríkjunum. Munið að í Norður-Ameríku er osteópatía fullgillt læknanám og farið er mismikið í líkamsmeðhöndlun í námi eftir skólum.

Osteópataskólar Í Bandaríkjunum
 
Osteópatafélag Íslands hefur ekki gert gæðaúttekt á þessum skólum og ábyrgist ekki að útskrift úr þessum skólum tryggi starfsréttindi hér á landi. Hafa skal í huga að skóli verður að útskrifa nema með bachelor gráðu eða sambærilegt eða hærri gráðu til að öðlast löggildingu á Íslandi sem osteópati.