Námskeið fyrir nuddara og aðra þerapista mars 2012

Haldið verður tveggja daga námskeið fyrir heilsunuddara, höfuðbeina og spjaldhryggs meðferðaraðila, eða aðra meðferðaraðila helgina 17.-18. mars 2012 klukkan 9-17. Námskeiðið verður haldið í Heilbrigðisskólanum.

Á námskeiðinu verður farið í bóklega og verklega kennslu, bæði strain counterstrain

og neuromuscular aðferða.

Strain counterstrain er blíð en jafnframt árangursrík leið til að meðhöndla verki og stífa vefi, og er þessi tækni því góður valkostur þegar kraftmikil meðhöndlun er ekki viðeigandi. Aðferðin er sérstaklega góð þar sem annarskonar meðhöndlun er of sársaukafull.

Neuromuscular aðferðin hefur bæði meðhöndlunar og greiningar gildi þar sem beitt er djúpum þrýsting og togi á vefi. Í verklegu kennslunni verður m.a. farið í meðhöndlun óhefðbundnari líkamssvæða s.s. framan á hálsi, nára og kvið.

Þessum aðferðum má svo tvinna saman við meðhöndlun, og henta því vel saman.

Helgin kostar 36.000 og er skráning hafin á netfanginu fridahauks@yahoo.com.

Ef frekari upplýsinga er óskað vinsamlegast sendið tölvupóst á Fríðu Hauksdóttur osteópata á sama netfang. 

Ath. Helgin kostar 30.000 ef skráning er fyrir 17 febrúar.